132. löggjafarþing — 91. fundur, 22. mars 2006.
Fæðingarorlofssjóður.
424. mál
Frú forseti. Þar sem ég er þingmaður fyrir Suðvesturkjördæmi og margtengdur við landsbyggðina þá er ég í hjarta mínu mjög sammála þessari ákvörðun. Ég hef búið í Vestmannaeyjum, á miklar ættir austur á landi, þannig að ég er mjög tengdur þessum málum og veit alveg um hvað ég er að tala.