132. löggjafarþing — 104. fundur,  19. apr. 2006.

Starfsáætlun þingsins.

[13:07]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Vegna orða hv. þingmanns vill forseti taka það fram að vonir standa til þess að hefðbundinn fyrirspurnatími verði hér haldinn í næstu viku, næstkomandi miðvikudag.

Forseti vill jafnframt láta þess getið að hann hefur lagt áherslu á það að sem flestum fyrirspurnum væri svarað í þinginu. Þannig hefur fyrirspurnatímum verið fjölgað og þeir hafa líka verið lengdir þannig að það hefur gefist nokkuð gott tækifæri til að svara hér fyrirspurnum enda hefur núna í vetur yfir 200 fyrirspurnum frá hv. þingmönnum verið svarað.