133. löggjafarþing — 1. fundur, 2. okt. 2006.
fundarbjalla Alþingis.
Um leið og ég set þingfund með því að slá í þingbjölluna, þennan gamalkunna grip með sinn þekkta hljóm, þá vil ég vekja athygli hv. alþingismanna á því að settur hefur verið nýr fótur undir bjölluna. Hann er smíðaður úr hegg héðan úr Alþingisgarðinum og smiðurinn er einn af starfsmönnum þingsins og við þökkum honum verk hans.