133. löggjafarþing — 16. fundur,  19. okt. 2006.

hvalveiðar.

[10:51]
Hlusta

Össur Skarphéðinsson (Sf):

Frú forseti. Það er óhjákvæmilegt að draga þá ályktun af þeim orðum sem fallið hafa af munnum ráðherra að það sé rangt hjá hæstv. sjávarútvegsráðherra að einhugur ríki innan ríkisstjórnarinnar um ákvörðun hans um hvalveiðar. Það hefur komið alveg skýrt fram hjá hæstv. umhverfisráðherra að hún hefur fyrirvara, og eins og hún hefur skýrt þann fyrirvara í fjölmiðlum þá eru þeir ekki einn, heldur tveir.

Ég gerði hins vegar alvarlega athugasemd við að hæstv. umhverfisráðherra er lögð á flótta. Af hverju, frú forseti, er hæstv. umhverfisráðherra ekki í þessum sal til að svara fyrir sig og sinna þeirri skyldu að greina Alþingi frá þeim fyrirvörum sem hún er að láta leka út til fjölmiðla?

Hæstv. umhverfisráðherra hefur enga afsökun. Hún var látin vita af því í gærkvöldi að þetta mál yrði tekið upp á þinginu. Hún var látin vita af því að þingmenn stjórnarandstöðunnar mundu ganga sérstaklega eftir því að hún skýrði fyrirvara sína. En hæstv. umhverfisráðherra leggur ekki í að koma til umræðunnar. Hvers vegna? Vegna þess að ef hún hefði komið, þá hefði komið í ljós að ágreiningur ríkir um þetta mál innan ríkisstjórnarinnar.

Það er alveg ljóst að hæstv. umhverfisráðherra er ósátt við þá ákvörðun sem hæstv. sjávarútvegsráðherra hefur tekið. Það er ekki hægt annað en draga þá ályktun að hæstv. ráðherra sjávarútvegsmála hafi undirbúið þetta á bak við Framsóknarflokkinn. Á bak við hæstv. umhverfisráðherra. Það er hið alvarlega í málinu.

Hérna er enn einu sinni verið að niðurlægja Framsóknarflokkinn og beygja hann í duftið. Umhverfisráðherra hefur sagt að þetta gangi ekki gagnvart alþjóðlegum samningum og þetta gangi ekki gagnvart hreinleika hafsins. Ef einhver dugur er í henni á hún að stappa niður fæti fyrir málaflokki sínum (Forseti hringir.) og hún á ekki að fara eins og hrædd kona, hlaupandi í burtu, af vettvangi umræðunnar.