Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Herra forseti. Ég held að ljóst sé, miðað við þær fréttir sem hv. þingmaður sagði áðan um fundinn í menntamálanefnd, að eftir að stjórnarandstaðan hafnaði því að þessi mál yrðu rædd saman, Ríkisútvarpið ehf. og Sinfóníuhljómsveitin, að ekki sé gefið að þau verði send út saman. Stjórnarandstaðan hafnaði því að þessi mál yrðu rædd saman og hvaða rök eru þá með því að þau verði send út saman? Það segir sig sjálft að það er ekkert sem hægt er að gefa sér í þeim efnum. Mér finnst það í rauninni sjálfafgreitt miðað við afstöðu stjórnarandstöðunnar varðandi umræðuna um Ríkisútvarpið. Fyrst hún neitaði að ræða þessi tvö mál saman, þetta mál sem er sérstaklega afsprengi eins og ég gat um Ríkisútvarpsins ohf. — af hverju ætti þá að bíða með að senda þau út þar til þetta er líka búið? Þetta er því afskaplega eðlilegt viðhorf hjá formanni menntamálanefndar.
En það var ekki þess vegna sem ég kom hingað upp heldur fyrst og fremst til að taka undir með hv. þm. Kolbrúnu Halldórsdóttur varðandi það að tengsl Sinfóníuhljómsveitarinnar og Ríkisútvarpsins séu mikilvæg. En við vitum að það er að sjálfsögðu ágreiningur um rekstrarform Ríkisútvarpsins ohf. og við vitum hver afstaða hv. þingmanns í því máli er. Það er hins vegar alveg ljóst að fyrir liggur skýr vilji til að efla tengslin við Sinfóníuhljómsveitina ef eitthvað er.
Það má líka segja að sem betur fer hafa menn alltaf skoðanir á dagskrá Ríkisútvarpsins. Ég var á fundi síðast í gær með góðum hópi af skólafólki og þar spyrja menn: Sinnti Ríkisútvarpið nægilega vel umfjöllun og umsögnum um frábæran flutning á Eddunni eftir Jón Leifs sem var frumflutt um daginn hjá Sinfóníuhljómsveitinni? Hver og einn hefur sínar skoðanir á því hvernig og hversu miklu á að miðla. Ég ítreka að það er mikilvægt að tengslin verði áfram sterk á milli Ríkisútvarpsins og Sinfóníuhljómsveitarinnar.