útsendingar svæðisútvarpsins á Austurlandi.
Frú forseti. Það er eitt og annað sem hefur komið fram en það er alveg ljóst að ekki hefur verið beðið með neinar úrbætur í málefnum svæðisstöðvanna vegna rekstrarformsins og bendi ég þá m.a. á betri þjónustu varðandi fréttamiðlun og fréttaöflun alls staðar í öllum svæðisútvörpum. En ef við skoðum sögu og þróun svæðisútvarpa, og þekki ég þá sögu ágætlega eftir að hafa unnið á Ríkisútvarpinu, þá kemur þetta hægt, stundum of hægt en það er einmitt lykillinn að því að mínu mati og ég treysti því sem forsvarsmenn Ríkisútvarpsins segja. Þeir hafa trú á því að þeir með öðru rekstrarformi, breyttu rekstrarformi Ríkisútvarpsins, hafa verið með hraðari viðbrögð, skarpari og skýrari hlutverkaframsetningu Ríkisútvarpsins og hafa m.a. farið í það að sinna því almannaþjónustuhlutverki sem svæðisstöðvarnar svo sannarlega eru.
Ég átta mig algerlega á því að það verði ekki beðið með frekari þróun eða úrbætur vegna þess eins að breytt rekstrarform Ríkisútvarpsins er ekki komið á hreint. Það er alveg ljóst. Auðvitað verður haldið áfram með þessa þróun. En það er hins vegar líka alveg ljóst af minni hálfu að mörg tækifæri felast í breyttu rekstrarformi Ríkisútvarpsins, m.a. að hlúa að og byggja upp þessa þjónustu úti á landi. Þess vegna segi ég: Það eru tækifæri falin í því að breyta um rekstrarform Ríkisútvarpsins.
Ég get líka tekið undir með hv. þm. Einari Má Sigurðarsyni sem kom inn á ágætis staðsetningu og gott rými hjá svæðisstöðinni á Austurlandi. Það væri alveg hægt að hugsa sér betri nýtingu á því rými, m.a. að tengja oftar t.d. suður. Sjálf hef ég tekið þátt í einni útsendingu sem m.a. tengdist fyrstu kynningunni á breyttu rekstrarformi Ríkisútvarpsins en það var einmitt sent út frá svæðisstöðinni á Austurlandi. (Gripið fram í.)