133. löggjafarþing — 30. fundur, 20. nóv. 2006.
Landsvirkjun.
364. mál
Hæstv. forseti. Ég vil aðeins endurtaka og ítreka það sem áður hefur komið fram. Hér er ekki um skipulagslega sameiningu, formlega sameiningu eða samruna að ræða. Það er þvert á móti gert ráð fyrir því að Rarik og Orkubú Vestfjarða haldi áfram að gegna hlutverkum sínum eins og verið hefur.