133. löggjafarþing — 31. fundur, 21. nóv. 2006.
tilkynning um dagskrá.
Að loknum atkvæðagreiðslum um 1.–3. dagskrármál fer fram umræða utan dagskrár um þróun í fjarskiptaþjónustu eftir einkavæðingu Símans. Málshefjandi er hv. þm. Jón Bjarnason. Hæstv. samgönguráðherra Sturla Böðvarsson verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.