133. löggjafarþing — 40. fundur,  5. des. 2006.

vísun máls til nefndar.

[10:31]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Við atkvæðagreiðslu í gær um vísun frumvarps um ráðstafanir í kjölfar samnings við Bandaríkin um skil á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli til 2. umr. og nefndar urðu þau mistök að málinu var vísað til utanríkismálanefndar en ætlun flutningsmanns var að málið færi til allsherjarnefndar og hann gerði raunar tillögu um slíkt. Forseti leggur til að málið fari til allsherjarnefndar og fer málið í þá nefnd ef ekki eru gerðar athugasemdir.