133. löggjafarþing — 54. fundur,  18. jan. 2007.

Ríkisútvarpið ohf.

56. mál
[22:51]
Hlusta

Forseti (Jón Kristjánsson):

Ég vil geta þess að ætlunin er að halda hér fundi áfram. Það verður metið upp úr miðnættinu hvernig þessari umræðu hefur miðað fram en það er nauðsyn miðað við þann ræðutíma sem verið hefur. Það er ætlun forseta að þingmenn fái að tjá sig um þetta mál og þá er nauðsyn að nýta tímann sem allra best.