133. löggjafarþing — 60. fundur,  25. jan. 2007.

tilkynning um dagskrá.

[10:31]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Áður en gengið er til dagskrár fer fram umræða utan dagskrár um framkvæmd þjóðlendulaga. Málshefjandi er hv. þm. Björgvin G. Sigurðsson. Hæstv. fjármálaráðherra, Árni M. Mathiesen, verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.