133. löggjafarþing — 87. fundur, 13. mars 2007.
trjáræktarsetur sjávarbyggða.
51. mál
Hæstv. forseti. Mig langar til að spyrja hv. þm. Drífu Hjartardóttur um umsagnir. Hún nefndi umsagnaraðila sem hefðu gefið umsögn um málið. En ég heyrði ekki að í máli hennar hefði komið fram á hvern hátt umsagnaraðilar hefðu tekið á málinu. Hvers konar umsagnir fékk nefndin varðandi málið frá þeim helstu aðilum sem hv. þingmaður nefndi?