133. löggjafarþing — 90. fundur, 15. mars 2007.
frestun á fundum Alþingis.
700. mál
Herra forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um samþykki til frestunar á fundum Alþingis skv. 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar.
Tillagan hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 15. mars 2007 eða síðar, ef nauðsyn krefur.“
Tillagan skýrir sig sjálf.