tilkynning um embættismenn alþjóðanefnda.
Borist hafa eftirfarandi tilkynningar um kjör embættismanna alþjóðanefnda:
Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins: Ásta Möller formaður og Ágúst Ólafur Ágústsson varaformaður.
Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins: Guðfinna S. Bjarnadóttir formaður og Ellert B. Schram varaformaður.
Íslandsdeild NATO-þingsins: Ragnheiður E. Árnadóttir formaður og Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir varaformaður.
Íslandsdeild Norðurlandaráðs: Árni Páll Árnason formaður og Kjartan Ólafsson varaformaður.
Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins: Karl V. Matthíasson formaður og Árni Johnsen varaformaður.
Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA: Katrín Júlíusdóttir formaður og Bjarni Benediktsson varaformaður.
Íslandsdeild þingmannaráðstefnunnar um Norðurskautsmál: Sigurður Kári Kristjánsson formaður og Gunnar Svavarsson varaformaður.
Íslandsdeild þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu: Einar Már Sigurðarson formaður og Pétur H. Blöndal varaformaður.