Stjórnarráð Íslands.
Hæstv. forseti. Það getur vel verið að það fari hæstv. forsætisráðherra vel að uppnefna menn og bera á þá orð um að þeir séu afturhaldsmenn. Ég hef ekki sýnt það í þeirri ríkisstjórn sem ég hef setið með hæstv. ráðherra, að ég hafi verið afturhaldsmaður. Ég hef tekið á málefnum þeim sem ég hef farið með af miklum þrótti og þar hafa orðið miklar umbreytingar. Þannig að það er skömm að svona ummælum, hæstv. forsætisráðherra.
En hér liggur það fyrir sem komið hefur fram að það á eftir að semja um þetta allt saman. Það er það sem hæstv. forsætisráðherra ætti náttúrlega að gera, að fara heim til sín, í sinn flokk og til Samfylkingarinnar og skýra út hvernig þetta á að vera. Því málið er mjög óljóst. Það hefur ekkert nýtt komið fram sem segir manni að maður sé nokkru nær um þessa breytingu.
Ég ítreka það að ég vorkenni þeim samanburði að vitna til Bjarna Benediktssonar og þeirrar gjörðar sem hér er verið að fjalla um í dag því það var gert af stórsýni og framsýni (Forseti hringir.) sem hefur varað fram á (Forseti hringir.) þennan dag. En hér er ekki einu sinni (Forseti hringir.) verið að ganga frá neinu einasta atriði og á eftir að hnýta alla hnúta. Þetta er ekki gott verklag, hæstv. forsætisráðherra.