134. löggjafarþing — 8. fundur,  12. júní 2007.

almannatryggingar og málefni aldraðra.

11. mál
[11:21]
Hlusta

Frsm. meiri hluta heilbrn. (Pétur H. Blöndal) (S) (andsvar):

Herra forseti. Varðandi það síðasta, að afnema, er unnið að því að minnka tekjutengingar milli maka. Að mínu mati er það afskaplega ánægjulegt, það er einstaklingshyggja sem við sjálfstæðismenn höfum lengi barist fyrir, þ.e. að vera ekki að taka tillit til félagslegrar stöðu fólks. Ég er mjög ánægður með að hv. þingmaður sem telur sig vera vinstri mann sé fylgismaður slíkrar einstaklingshyggju, að sá sem er giftur hátekjumaka eigi að fá sama lífeyri og sá sem er giftur lágtekjumaka.

Varðandi það að gera þetta hratt lögðu fulltrúar eldri borgara áherslu á það að eldri borgarar hafa ekki tíma. Þeir geta ekki beðið í 10 ár eftir því að menn framkvæmi einhverjar tillögur og ræði og spjalli út og suður.

Varðandi ójöfnuðinn nefndi ég hann í ræðu minni. Ég nefndi að þarna væri verið að búa til ákveðið misræmi en vegna þess að við miðum við nokkuð háan aldur, um 70 ár, má reikna með að sátt muni nást um það.