135. löggjafarþing — 42. fundur,  12. des. 2007.

almannatryggingar o.fl.

195. mál
[10:39]
Hlusta

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Forseti vill beina því til hv. þingmanna að hefja ekki efnislegar umræður um einstakar greinar frumvarpsins heldur er um það að ræða að hv. þingmenn ræði um atkvæðagreiðsluna. Þingmenn geta síðan gert grein fyrir atkvæði sínu á eftir ef um það er að ræða.