135. löggjafarþing — 49. fundur,  17. jan. 2008.

varnarmálalög.

331. mál
[12:41]
Hlusta

Ragnheiður E. Árnadóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Það er rétt hjá hv. þingmanni að þarna voru boðaðar umræður og fyrirspurnir enda var það svo að hæstv. utanríkisráðherra sem þarna hafði líka framsögu svaraði fyrirspurnum fundarmanna, þar á meðal fyrirspurn hv. þingmanns, ef mig ekki misminnir, og gerði það eftir því sem ég best man af stakri prýði.