135. löggjafarþing — 81. fundur, 31. mars 2008.
umfjöllun fjárlaganefndar um skýrslu Ríkisendurskoðunar.
Forseti vill tilkynna að með bréfi dagsettu 27. mars 2008 hefur forseti óskað eftir því við fjárlaganefnd að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf. í samræmi við reglur um þinglega meðferð skýrslna Ríkisendurskoðunar er forsætisnefnd samþykkti 12. febrúar sl.