135. löggjafarþing — 100. fundur,  7. maí 2008.

störf þingsins.

[13:44]
Hlusta

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill geta þess vegna gagnrýni um að mál sé seint fram komið að sú gagnrýni snýr ekki að forseta heldur að ríkisstjórninni og vill forseti beina því til hv. þingmanna að snúa sér að fulltrúa ríkisstjórnarinnar og beina gagnrýni sinni til réttra aðila.