135. löggjafarþing — 106. fundur, 22. maí 2008.
leikskólar.
287. mál
Svar hæstv. forsætisráðherra barst í morgun og var samkvæmt vinnureglu á skrifstofu Alþingis búið til prentunar og síðan var því dreift. Hafi hv. þm. Álfheiður Ingadóttir fengið upplýsingar um svarið eftir öðrum leiðum er ekki við forseta að sakast. (Gripið fram í: …leita skýringa á því.) En forseti mun leita skýringa á því og bera fram ósk þingmannsins við forsætisráðherra.