136. löggjafarþing — 2. fundur,  2. okt. 2008.

stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.

[21:11]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Góðir landsmenn. Það er óhætt að taka undir með hæstv. forsætisráðherra að erfiðar ytri aðstæður þrengja nú að íslensku efnahagslífi. Í ljós hefur komið að hinn hnattvæddi kapítalismi hefur galla ekki síður en kosti þó að hér á Íslandi hafi ekki farið mikið fyrir umræðum um þær dökku hliðar sem nú sýna sig. Líkt og við þekkjum frá árinu 1929 hefur fjármálakreppa í Bandaríkjunum áhrif um allan heim, ekki síst í þeim löndum sem hafa lagt kapp á að njóta kosta hnattvæðingarinnar. Ísland er svo sannarlega í þeim hópi.

Hins vegar fór hæstv. forsætisráðherra ekki ítarlega út í orsakir þessara aðstæðna og enn síður ræddi hann þann hluta vandans sem er heimatilbúinn. Við í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði höfum margoft staðið í þessum stól og varað við þenslu, sívaxandi skuldasöfnun þjóðarbúsins og bent á að þjóðhagslegur sparnaður hafi aldrei verið minni. Afleiðingar þenslupólitíkurinnar eru augljósar: Heimilin í landinu eru stórskuldug, það sama má segja um sveitarfélögin og ekki síst atvinnulífið. Reiknað hefur verið út að skammtímaskuldbindingar bankanna nemi rúmum 3.000 milljörðum þegar allt er talið með og heildarskuldir allt að 13 þúsund milljörðum.

Þessi almenna skuldsetning gerir það að verkum að okkur reynist mun erfiðara en ella að mæta ytri aðstæðum. Ástandið í heiminum vekur svo auðvitað upp grundvallarspurningar um hið alþjóðlega fjármálakerfi og af hverju við lifum nú alvarlegri krepputíma en elstu menn muna.

Hér hafa margir ræðumenn notað líkingamál úr sjómennskunni, ólgusjór, þjóðarskúta og boðaföll, en ég leyfi mér að minna á að þegar fólk veiðir of mikið úr hafinu gengur það á auðlindina til frambúðar og skerðir möguleika komandi kynslóða. Nákvæmlega það sama hefur gerst í fjármálalífinu. Menn hafa skammtað sér ótrúlegar fjárhæðir, jafnvel milljarða fyrir skammtímaárangur, ekki bara hér á Íslandi heldur um allan heim, og gengið svo út úr bönkum sem nú riða til falls eða hafa verið þjóðnýttir í flaustri og í andstöðu við eigendur sína.

Samfélag okkar hefur að undanförnu æ meira snúist um dansinn í kringum gullkálfinn, menn hafa farið offari og fjárfest óvarlega. Á sama tíma hafa stjórnvöld setið hjá því að hér hefur verið rekin meðvituð pólitísk stefna um afskiptaleysi, sannkölluð „laissez faire“-stefna, menn eigi ekki að skipta sér af markaðnum. Hann leysir sín mál sjálfur. Í gegnum einkavæðingu hefur markaðurinn sífellt tekið til sín stærri skerf og lögmál hans hafa verið heimfærð upp á grunnþjónustu samfélagsins. Þegar komið er að skuldadögum reynast markaðslausnir hins vegar ekki duga. Þær duga ekki í Bandaríkjunum og þær duga ekki heldur á Íslandi. Hins vegar má segja að markaðurinn hafi tekið völdin af stjórnvöldum. Þegar einhver tapar peningum fer samfélagið á annan endann. Afleiðingin verður sú að við töpum öll. Þetta hefur þó ekki gilt um gróðann, aðeins tapið og þá þversögn þurfa stjórnvöld að horfast í augu við.

Hafa stjórnvöld áttað sig á því? Ég er ekki viss um að ég heyri það á hæstv. forsætisráðherra sem mætir hér og stærir sig enn og aftur af því að hið opinbera hafi dregið sig út úr atvinnurekstri og almannaeignir hafi verið einkavæddar. Það er erfitt fyrir þá sem trúa á Friedman og Fukuyama sem sagði á sínum tíma að mannkynssögunni væri lokið, frjálshyggjan hefði sigrað að eilífu, amen. Auðvitað er erfitt að horfa upp á það hrun sem nú á sér stað á alþjóðlegum fjármálamörkuðum.

Hvað ætlum við að gera og hvað ætlar ríkisstjórn Íslands að gera undir þessum kringumstæðum? Við getum ekki sagt að hér sé allt í lagi og að allt hafi verið rétt gert. Við megum ekki viðhalda því kerfi sem hefur aukið þannig bilið í samfélaginu að hér eru öryrkjar og aldraðir með 130 þús. kr. mánaðarlaun, fólk með kjarasamninga upp á 150 þús. kr. á sama tíma og við höfum gengið í gegnum tímabil þar sem fólk hefur tekið sér ofurlaun, kaupréttarsamninga og starfslokasamninga upp á hundruð og jafnvel þúsundir milljóna.

Við sem skipum stjórnarandstöðuna bjóðum ekki upp á auðveldar skyndilausnir. En ég tek undir með formönnum stjórnarandstöðuflokkanna sem hér hafa talað að það þarf að kalla til samráðs. Það þarf að kalla saman fulltrúa allra stjórnmálaflokka, viðskiptalífs, atvinnurekenda og verkalýðshreyfingar, ábyrgt fólk með yfirsýn og helst að loka það saman inni í herbergi þangað til það kemur út með aðgerðir til lausnar. Það gengur ekki að hér sé seðlabanki og seðlabankastjóri sem gerir eitt, ríkisstjórn sem gerir annað, að viðskiptalífið sé ekki haft með í ráðum og ekki sé talað við þá sem eiga að koma að borðinu. Ég er ekki endilega að tala um þjóðstjórn eins og þá sem talað er um á forsíðu Fréttablaðsins í dag svo að enginn haldi að einhverjir ásælist þá stóla sem hér eru þétt setnir. Ég er einfaldlega að tala um að hæstv. forsætisráðherra taki nú forustu, viðurkenni mistök og reyni að greiða úr vandanum með lýðræðislegum og ábyrgum hætti. Það er hægt að ræða endalaust um orsakir ástandsins en sú umræða skilar engu ef ekki verður gengið að því að leysa málið með sem minnstum skakkaföllum fyrir almenning. Við þurfum að huga að lausnum. Við þurfum að ganga í þau verk sem þarf að vinna eins og hv. þingmaður Steingrímur J. Sigfússon fór yfir áðan í ræðu sinni og auðvitað megum við ekki missa kjarkinn gagnvart því risavaxna verkefni. En málin verða hins vegar ekki leyst til framtíðar nema við komumst út úr þessari skammtímahugmyndafræði. Það er ekki hægt að leysa vandann með sömu ráðum og ollu honum til að byrja með. Það þarf að setja skýrari regluverk um hinn frjálsa markað og það skiptir máli að komast undan oki alræðisfrjálshyggjunnar sem fellir allt undir markaðshugsun. Kannski þarf Sjálfstæðisflokkurinn að taka sér frí eftir að hafa haldið um fjármálin undanfarin 17 ár því að fyrst og fremst er þetta gjaldþrot stjórnarstefnu Sjálfstæðisflokksins.

Við erum að ganga inn í nýja tíma og nýja hugsun, ekki aðeins í efnahagsmálum heldur líka umhverfismálum og velferðarmálum. Ef við ætlum að byggja hús okkar á bjargi þurfum við að fylgja leiðarljósi sjálfbærni. Við getum ekki gengið endalaust á höfuðstólinn hvort sem það eru peningar, auðlindir eða samfélagsbyggingin sjálf. Til að ávaxta sitt pund til langframa þarf að byggja á traustum undirstöðum. Góðir landsmenn. Þær undirstöður höfum við og við skulum standa vörð um þær.