136. löggjafarþing — 44. fundur, 5. des. 2008.
fjárhagsleg fyrirgreiðsla hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
161. mál
Vegna orða hv. þingmanns vill forseti taka fram að hæstv. iðnaðarráðherra er staðgengill hæstv. utanríkisráðherra nú um stundir og hefur verið hér meira og minna alla umræðuna. Það vill svo til að hæstv. iðnaðarráðherra, starfandi utanríkisráðherra, er ekki hér eins og er, en forseti mun gera ráðstafanir til þess að hæstv. iðnaðarráðherra komi svo fljótt sem verða má.