136. löggjafarþing — 117. fundur,  30. mars 2009.

listamannalaun.

406. mál
[16:32]
Horfa

Þuríður Backman (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Hér er vissulega verið að fjölga þeim listamönnum sem á næstu þremur árum hafa möguleika á að hljóta listamannalaun samkvæmt reglum sem þar eru settar. Þessi aukning kemur ekki til á þessu ári, hún kemur til á næsta ári og næstu þremur árum. Það er því ekki verið að leggja fjölgunina til í ár heldur með vísan til fjárlagagerðar fyrir næstu þrjú ár, svo að það sé alveg ljóst.