136. löggjafarþing — 132. fundur,  16. apr. 2009.

hlutafélög og einkahlutafélög.

356. mál
[00:14]
Horfa

Forseti (Þuríður Backman):

Forseti getur upplýst og minnt hv. þingmann á að fyrr í kvöld bar forseti sem þá sat það upp fyrir þingheim að hér yrði heimild til að funda fram yfir miðnætti og fylgja dagskránni og við því varð þingheimur. Þó svo að nú sé komið rétt fram yfir miðnætti er dagskráin ekki tæmd og því mun forseti halda áfram með dagskrána.