136. löggjafarþing — 132. fundur,  16. apr. 2009.

hlutafélög og einkahlutafélög.

356. mál
[00:52]
Horfa

Forseti (Guðbjartur Hannesson):

Forseti getur upplýst að mál 11 og 12 munu ekki verða hér á dagskrá heldur ætlar forseti að reyna að freista þess að ná 13. dagskrármáli, um sjúkraskrár, í gegn í kvöld ásamt 19. dagskrármáli, um veitingu ríkisborgararéttar, sem er til 1. umr., þannig að það sé upplýst hvaða markmið forseti hefur sett sér fyrir fund kvöldsins.