137. löggjafarþing — 8. fundur, 28. maí 2009.
aðildarumsókn að Evrópusambandinu.
38. mál
Frú forseti. Hv. þm. Árni Þór Sigurðsson, þetta var fróðlegt. Ber að skilja orð hv. þingmanns sem svo að Vinstri hreyfingin – grænt framboð ætli að vera með í aðildarviðræðum við Evrópusambandið? Ef sú er raunin, ef Vinstri hreyfingin – grænt framboð ætlar að vera fullur þátttakandi í því, eru það ný tíðindi og væri mjög fróðlegt fyrir þingheim að heyra þau.