137. löggjafarþing — 19. fundur,  15. júní 2009.

niðurfelling persónulegra ábyrgða starfsmanna Kaupþings.

[15:18]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. viðskiptaráðherra fyrir ágætt svar. Mig langar að vita hvort þau tilvik sem hér um ræðir eru bundin við téðan banka, Kaupþing, eða hvort þau eigi að einhverju leyti við um aðrar gamlar bankastofnanir á Íslandi. Þess utan langar mig að vita í hvaða lög ráðherra vísar sem ná ekki yfir þennan gjörning.