137. löggjafarþing — 22. fundur, 18. júní 2009.
Icesave-samningar og ríkisábyrgð.
Áður en ég gef hv. þm. Höskuldi Þórhallssyni orðið vill forseti geta þess að eins og þingmenn vita er ráðgerð utandagskrárumræða um Icesave-samningana og upplýsingar um þá síðdegis. Forseti hyggst ræða það mál við þingflokksformenn á eftir á stuttum þingflokksformannafundi, að loknum þessum umræðum, en hyggst áður klára hér atkvæðagreiðslu.