137. löggjafarþing — 46. fundur,  23. júlí 2009.

hlutafélög og einkahlutafélög.

15. mál
[17:12]
Horfa

Frsm. viðskn. (Álfheiður Ingadóttir) (Vg):

Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti hv. viðskiptanefndar sem er að finna á þskj. 197, um frumvarp til laga um breyting á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög, þ.e. einföldun reglna við samruna og skiptingu. Þetta frumvarp felur í sér innleiðingu EES-reglna um að einfalda ákvæði um samruna og skiptingu hlutafélaga og einkahlutafélaga með því að fella niður kröfu um framlagningu skýrslu óháðs sérfræðings ef allir hluthafar eru því samþykkir. Þetta frumvarp var lagt fram á 136. þingi en náði ekki fram að ganga, einkum vegna athugasemda sem nefndinni bárust frá ríkisskattstjóra. Tekið var tillit til þeirra við endurflutning málsins í vor og aðrir sem umsögn veittu um málið, en þeir voru samtals átta, gerðu ekki athugasemdir við frumvarpið.

„Um er að ræða innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2007/63/EB um breytingu á tveimur tilskipunum ráðsins, þ.e. 78/855/EB og 82/891/EB. Tilskipunin tekur til hlutafélaga en gert er ráð fyrir samsvarandi breytingum til einföldunar í lögum um einkahlutafélög enda ákvæði um samruna og skiptingu svipuð í lögunum. Í frumvarpinu eins og það kemur fram nú hefur verið tekið tillit til breytingartillögu sem gerð var við fyrra frumvarpið á 136. löggjafarþingi. Hún lýtur að því að þrátt fyrir samþykki allra hluthafa um að falla frá gerð samrunaskýrslu skuli engu síður lögð fram yfirlýsing frá endurskoðanda um að hve miklu leyti samruninn kunni að rýra möguleika lánardrottna á fullnustu í einstökum félögum.“

Ríkisskattstjóri lagði áherslu á mikilvægi þessara gagna.

„Nefndin leggur til þá efnisbreytingu á frumvarpinu að í stað þess að endurskoðandi veiti yfirlýsingu um það að hve miklu leyti samruni kunni að rýra möguleika lánardrottna á fullnustu í hinum einstöku félögum, sbr. 2. málsl. 1. gr. frumvarpsins, þá muni óháðir, sérfróðir matsmenn gefa þá yfirlýsingu. Ekki þykir ástæða til að einskorða slíka yfirlýsingu við það að endurskoðendur gefi hana.“ — Þ.e. ekki þrengja skilgreininguna í hlutafélagalögunum. — „Í 1. mgr. 7. gr. laga um hlutafélög eru matsmenn skilgreindir sem löggiltir endurskoðendur, lögmenn eða aðrir sérfróðir dómkvaddir menn. Þessi breyting leiðir af sér nokkrar tæknilegar breytingar á I. kafla frumvarpsins hvað varðar hugtakanotkun, tilvísanir í önnur ákvæði o.fl.“

Þær breytingartillögur eru þess vegna nokkuð fyrirferðarmiklar. Þær er að finna á sérstöku þingskjali, nr. 198, en efnisatriði máls breytingartillagnanna er það eitt sem ég nefndi að í stað þess að endurskoðandi veiti yfirlýsingu munu óháðir sérfróðir matsmenn, þ.e. löggiltir endurskoðendur, lögmenn og aðrir sérfróðir dómkvaddir menn, veita slíka yfirlýsingu.

Undir þetta nefndarálit rita auk þeirrar sem hér stendur Magnús Orri Schram, Guðlaugur Þór Þórðarson, Björn Valur Gíslason, Ragnheiður E. Árnadóttir og Margrét Tryggvadóttir. Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með framangreindum breytingum.