138. löggjafarþing — 8. fundur,  15. okt. 2009.

heimsókn forseta sænska þingsins.

[10:30]
Horfa

Forseti (Ragnheiður Ríkharðsdóttir):

Ég vil vekja athygli hv. alþingismanna og hæstv. ráðherra á því að forseti sænska ríkisþingsins, Per Westerberg, er staddur á þingpöllum ásamt fylgdarliði. Forsetinn og fylgdarlið hans eru stödd hér á landi í boði Alþingis.

Ég vil fyrir hönd Alþingis bjóða forseta sænska ríkisþingsins, Per Westerberg, og fylgdarlið velkomið í Alþingishúsið og vænti þess að för þeirra til Íslands verði til þess að styrkja enn frekar þau góðu tengsl sem eru milli Alþingis og Riksdagen.

Alþingi vottar forseta sænska ríkisþingsins og sænsku þjóðinni vináttu og virðingu. Ég bið háttvirta alþingismenn og hæstv. ráðherra að taka undir orð mín með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]