138. löggjafarþing — 20. fundur,  5. nóv. 2009.

vörumerki.

46. mál
[17:28]
Horfa

Frsm. meiri hluta viðskn. (Magnús Orri Schram) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil svara þessari spurningu svona: Ef þingmaðurinn óskar eftir því að málið verði tekið aftur inn í nefndina verðum við að sjálfsögðu við því. Við tökum þá upplýsta umræðu um það í viðskiptanefnd hvort við höfum aðra valkosti. Ég tel að einhverju leyti að við höfum það ekki en vil samt sem áður ekki fullyrða neitt, en eins og ég sagði í fyrri ræðu minni hef ég hv. þingmann í miklum metum og mun að sjálfsögðu fara eftir því sem hún biður mig um.