138. löggjafarþing — 40. fundur, 7. des. 2009.
varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá Atla Gíslasyni, hv. 4. þm. Suðurk., um að hann geti ekki sótt þingfundi á næstunni af persónulegum ástæðum. Fyrsti varamaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í kjördæminu, Arndís Soffía Sigurðardóttir, ferðaþjónustubóndi og sýslufulltrúi, tekur sæti á Alþingi í dag. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa.