138. löggjafarþing — 80. fundur, 24. feb. 2010.
varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá hv. 7. þm. Norðvest., Ólínu Þorvarðardóttur, um að hún geti ekki af einkaástæðum sótt þingfundi næstu tvær vikur. Í dag tekur sæti á Alþingi 1. varamaður Samfylkingarinnar í kjördæminu, Arna Lára Jónsdóttir verkefnisstjóri. Kjörbréf Örnu Láru Jónsdóttur hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hún hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni samkvæmt 2. gr. þingskapa.
[Anna Lára Jónsdóttir, 7. þm. Norðvest, undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]