138. löggjafarþing — 128. fundur,  31. maí 2010.

tilkynning um dagskrá.

[12:02]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Um kl. hálfeitt í dag, að loknum dagskrárliðnum óundirbúinn fyrirspurnatími, fer fram umræða utan dagskrár um stöðu atvinnumála. Málshefjandi er hv. þm. Ragnheiður E. Árnadóttir. Fjármálaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.