138. löggjafarþing — 145. fundur, 16. júní 2010.
umfjöllun þingsins um hæstaréttardóma.
Forseti vill geta þess vegna fyrirspurna sem komu fram á fundinum hér á undan að forsætisráðherra og fjármálaráðherra hafa boðað formenn flokka á sinn fund eftir nokkrar mínútur. Ákveðið hefur verið að boða til fundar í efnahags- og skattanefnd nú á eftir vegna þessa máls. Forseti mun kanna hvort menn hafa tök á að bregðast við því. Efnahags- og skattanefnd mun taka þetta fyrir nú strax í kvöld.