138. löggjafarþing — 164. fundur,  21. sept. 2010.

málshöfðun gegn ráðherrum.

707. mál
[17:29]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég geri athugasemd við fyrirkomulagið sem hæstv. forseti var að lýsa. Eftir því sem ég skrifaði niður eftir samtal okkar á fundi þingflokksformanna í gær leit ég svo á að flutningsmaður og fyrsti talsmaður hvers þingflokks hefði 25 mínútur í fyrra sinn. Ég vil koma þessu sjónarmiði á framfæri og óska eftir því að þetta verði leiðrétt.