138. löggjafarþing — 167. fundur, 27. sept. 2010.
málshöfðun gegn ráðherrum.
706. mál
Frú forseti. Ég er einfaldlega ósammála hv. þm. Birgi Ármannssyni. Það er ítarlega rökstutt bæði í greinargerð með þingsályktunartillögunni og því nefndaráliti sem ég mælti fyrir hér áðan. Ég verð enn að minna á að það verklag og þær aðferðir sem meiri hluti nefndarinnar hafði til að komast að þessari niðurstöðu var afar ítarleg og vönduð skoðun á öllum þáttum þessa máls.