139. löggjafarþing — 68. fundur,  1. feb. 2011.

Vegagerðin, framkvæmdastofnun samgöngumála.

386. mál
[16:37]
Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg):

Ég vil þakka fyrir þessa umræðu og ágæt orð hæstv. utanríkisráðherra. Það er alveg rétt sem hann segir, hér er verið að reka pólitískan endahnút á mál sem á sér langan aðdraganda. Ég rakti feril málsins allt frá því Ríkisendurskoðun gerði sína úttekt og ráðuneytið tók síðan til sinna ráða. Það er eins með göngin og þessa tillögusmíð, að hvorki ég né forveri minn í embætti grófum göngin eða skópum lögin, það voru að sjálfsögðu fjölmargir starfsmenn ráðuneytisins sem komu þar að eins og hæstv. utanríkisráðherra veit að sjálfsögðu. Vil ég nota þetta tækifæri til að þakka fyrir það góða starf sem þeir hafa innt af hendi.