nýr Icesave-samningur.
Virðulegi forseti. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hv. þingmaður telur að ég hafi ekki kynnt mér Icesave-samningana. Það er auðvitað alrangt, ég hef kynnt mér þá eins og aðrir hér inni sem ber líka skylda til að gera það. (Gripið fram í.) Ég er ekki alveg örugg um afstöðu hv. þingmanns til Icesave-samninganna sem munu koma fljótlega til atkvæða en þessir samningar eru miklu betri en samningarnir sem voru áður. Munar þar nokkru þó að ég taki ekki undir þær tölur sem nefndar hafa verið sem mismunur á þessum samningi og hinum fyrri.
Það liggur fyrir að það eru um 100 milljarðar kr. (Forseti hringir.) þó að sumir vilji nefna hærri tölur. Eins og hv. þingmaður veit eru ýmsar skýringar á því af hverju þessir samningar eru miklu hagstæðari en þeir fyrri. Er þá fyrst til að telja að gengisþróunin gefur miklu betri niðurstöðu og heimtur úr búinu þannig að margt hefur lagst saman með því að þessir samningar eru mun hagstæðari en þeir fyrri. Þeir ættu nú að liggja þannig á borðinu að hv. þingmaður ætti að taka sér formann Sjálfstæðisflokksins til fyrirmyndar og samþykkja þessa samninga. (Gripið fram í: Við erum alveg …) (Gripið fram í: Bara í þessu.) [Hlátur í þingsal.]