139. löggjafarþing — 72. fundur,  15. feb. 2011.

störf í þágu þjóðar -- málefni grunnskólans -- skipulagsmál sveitarfélaga o.fl.

[14:30]
Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg):

Frú forseti. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem umdeildan samning Landsvirkjunar og Flóahrepps ber á góma hér í þingsölum. Ég minni á að í nefndaráliti mínu um Helguvíkursamninginn er þessi samningur birtur frá orði til orðs. Hann er dagsettur 19. júlí 2007 og enn fremur samningur Orkuveitu Reykjavíkur við sveitarfélagið Ölfus.

Samningur Landsvirkjunar er ekki aðeins um að orkufyrirtæki greiði fyrir skipulagsvinnu heldur líka fyrir óþægindi og aukið vinnuálag sveitarstjórnarmanna í hreppsnefnd Flóahrepps. Þeir fengu 200 þús. kr. hver fyrir að sitja óskráða fundi, fyrir að koma á GSM-sambandi í hreppinn, fyrir uppbyggingu á upplýsingamiðstöð fyrir ferðaþjónustu og einnig fyrir lögboðin verkefni sveitarfélags, eins og aðveitulögn og jafnvel miðlunartank fyrir vatnsveitu. (Gripið fram í.) Loks 40 millj. kr. eingreiðslu til að tryggja byggð í sveitarfélaginu. Einum íbúa ofbauð þetta og kærði til sveitarstjórnarráðuneytisins, sem nú er innanríkisráðuneyti og á að hafa eftirlit með þessu, og til umboðsmanns Alþingis sem sendi málið til baka í samgönguráðuneytið sem komst að þeirri niðurstöðu að samningurinn bryti í bága við lög, þ.e. að 6. gr. samningsins, sem fjallar um skipulagsmálið, tæki ekki á því sem snýr að greiðslum fyrir aðra hluti.

Samningarnir sem ég hef nefnt vekja áleitnar spurningar um það hvort ítök og afskipti raforkufyrirtækjanna í stjórnsýslu á sveitarstjórnarstigi séu sæmandi. Það þarf að taka þessi mál upp og ræða þau af alvöru. Ég kalla eftir því að þingmenn kynni sér samningana og að settar verði siðareglur í (Forseti hringir.) þessu opinbera orkufyrirtæki okkar þannig að þetta gerist ekki aftur. (SIJ: Ég hélt að þú ætlaðir að biðjast afsökunar.) (Gripið fram í.) (Forseti hringir.)

(Forseti (ÁRJ): Forseti biður um hljóð í þingsal.)