139. löggjafarþing — 112. fundur, 14. apr. 2011.
tilkynning um úrsögn úr þingflokki.
Borist hefur svohljóðandi bréf frá Ásmundi Einari Daðasyni, 9. þm. Norðvest.:
Hér með tilkynnist að ég hef í morgun með tölvupósti til Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs sagt mig úr þingflokknum. Ég mun héðan í frá starfa sem óháður þingmaður.
Reykjavík, 14. apríl 2011,
Ásmundur Einar Daðason.