139. löggjafarþing — 123. fundur,  12. maí 2011.

fríverslunarsamningur EFTA og Albaníu og landbúnaðarsamningur Íslands og Albaníu.

681. mál
[14:45]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Árni Þór Sigurðsson) (Vg):

Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá utanríkismálanefnd um tillögu til þingsályktunar um fullgildingu fríverslunarsamnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Lýðveldisins Albaníu og landbúnaðarsamnings milli Íslands og Lýðveldisins Albaníu.

Með þessari tillögu er leitað heimildar Alþingis til fullgildingar tveggja samninga. Annars vegar er um að ræða fríverslunarsamning milli aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu, EFTA, og Albaníu, en hann var undirritaður 17. desember 2009 í Genf, og hins vegar er um að ræða landbúnaðarsamning milli Íslands og Albaníu sem undirritaður var sama dag.

Þessi fríverslunarsamningur við Albaníu er af svokallaðri fyrstu kynslóð fríverslunarsamninga og nær yfir vöruviðskipti en jafnframt eru þar almenn ákvæði um vernd hugverka, fjárfestingar, þjónustuviðskipti og opinber innkaup.

Landbúnaðarsamningurinn milli Íslands og Albaníu er viðbótarsamningur og gerður með vísan til fríverslunarsamninganna. Viðskipti með óunnar landbúnaðarvörur falla undir landbúnaðarsamninginn, en í tilviki Albaníu veitast Íslandi sömu tollfríðindi og í samningi Albana við Evrópusambandið sem felur meðal annars í sér að tollar á lifandi hrossum og ostum falla niður.

Vöruútflutningur til Albaníu hefur raunar verið lítill undanfarin ár og er aðeins mældur í nokkrum milljónum króna. Með fríverslunarsamningnum fella EFTA-ríkin niður tolla af iðnaðarvörum og sjávarafurðum frá og með gildistöku samningsins. Af hálfu Albaníu falla tollar á nokkrum vöruflokkum niður í skrefum en Albanía fellir niður tolla á sjávarafurðum frá gildistöku samningsins.

Fríverslunar- og landbúnaðarsamningarnir eru mikilvægir til að bæta aðgang fyrirtækja í EFTA-ríkjunum, þar á meðal íslenskra fyrirtækja, að mörkuðum í Albaníu. Með samningunum verður dregið úr viðskiptahindrunum eða þær afnumdar og því mun samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja batna í Albaníu.

Utanríkismálanefnd leggur til að þessi tillaga verði samþykkt.

Undir nefndarálitið rita Árni Þór Sigurðsson, Birgitta Jónsdóttir, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Helgi Hjörvar, Jón Gunnarsson, Valgerður Bjarnadóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.