139. löggjafarþing — 143. fundur, 7. júní 2011.
gjaldeyrismál og tollalög.
788. mál
Virðulegi forseti. Nú er það þannig að krónueign erlendra aðila á Íslandi er flokkuð sem erlend skuld í skuldaskilum Íslendinga. Það að krónueign erlendra aðila breytist í evrueign erlendra aðila hefur því engin áhrif á skuldahlutföllin á Íslandi, nema náttúrlega ef gengið fellur stórkostlega.