139. löggjafarþing — 161. fundur, 12. sept. 2011.
frumvarp um Stjórnarráðið.
Forseti vill biðjast velvirðingar á því að formönnum þingflokka var tilkynnt að hæstv. fjármálaráðherra væri forfallaður og óundirbúnum fyrirspurnum yrði ekki beint til hans að þessu sinni. Ráðherra hefur nú komið á fundinn en hann situr ekki fyrir svörum. Hann mun sitja fyrir svörum í næsta fyrirspurnatíma sem er næstkomandi fimmtudag.