nýsköpunarátak til að stórefla heilsársferðaþjónustu úti á landi.
Hæstv. forseti. Atvinnumál hafa verið í brennidepli á hinu háa Alþingi í dag og er það vel. Rætt hefur verið um græna hagkerfið, tillögur framsóknarmanna í atvinnumálum og nú kemur til umræðu á Alþingi tillaga um að stórefla heilsársferðaþjónustu úti á landi.
Sá sem hér stendur er fullviss um að ferðaþjónusta verði einn af máttarstólpum í atvinnumálum Íslendinga til langrar framtíðar. Íslendingar hafa, frú forseti, upp á margt mikilvægt að bjóða, ekki aðeins á sumrin heldur yfir allt árið. Þetta er breitt svið og nær ekki einvörðungu til ferðalaga og afþreyingarmöguleika heldur einnig til menningar allrar í breiðustu merkingu þess orðs.
Mikilvægustu atriðin að mati þess sem hér stendur þegar kemur að ferðaþjónustu er að dreifa henni betur yfir landið og yfir árið. Við Íslendingar munum ekki geta sótt fram í þessum mikilvæga atvinnuvegi nema með því móti að fjölga áfangastöðum ferðamanna og laða þá til landsins á hinum svokölluðu öxlum, að hausti og vori, en jafnframt yfir háveturinn. Til þessa þáttar í ferðaþjónustu horfa öll nágrannalönd okkar og í þessari þingsályktunartillögu upp á tíu blaðsíður er farið mjög vandlega yfir það hvernig aðrar þjóðir hafa mætt áskorunum í ferðaþjónustu undanfarin ár, sem er einkum með því móti að fjölga áfangastöðum, valkostum og dreifa ferðaþjónustunni betur yfir árið.
Nú taka Íslendingar nánast alla erlenda ferðamenn sína til landsins í gegnum eitt hlið sem heitir Leifsstöð og með fullri virðingu fyrir þeim góða áfangastað erum við komin að ystu mörkum þess að landið, ferðalandið, í kringum þann flugvöll geti tekið á móti fleiri ferðamönnum svo vel sé á þeim stutta tíma sem ferðasumarið á Íslandi er enn sem komið er.
Frú forseti. Mig langar að staldra við upphaf þingsályktunartillögunnar sem 18 þingmenn flytja að meðtöldum þeim sem hér stendur.
Alþingi ályktar að fela iðnaðarráðherra að hlutast hið fyrsta til um að hafið verði nýsköpunarátak í ferðaþjónustu úti á landi í þeim þríþætta tilgangi að fjölga erlendum ferðamönnum utan háannatíma, bæta við áfangastöðum á landinu, svo að álag á ferðamannastaði dreifist betur, og nýta betur og efla öll þau fjölmörgu samgöngu- og menningarmannvirki sem ríki og sveitarfélög hafa fjárfest í.
Frú forseti. Síðar í tillögunni í greinargerð sem með henni fylgir segir:
Með þingsályktunartillögu þessari er ætlunin að bregðast við gríðarlegri fjölgun erlendra ferðamanna til landsins á síðustu árum og þeim spám að fjöldi þeirra muni tvöfaldast á næstu tíu árum. Ljóst er að margir helstu ferðamannastaðir á suðvestanverðu landinu, sem liggja næst Keflavíkurflugvelli, þola vart eða ekki meiri ásókn ferðamanna á háannatíma nema gripið sé til aðgerða sem mögulega spilla ásýnd og yfirbragði þess sem ferðamenn sækjast eftir. Einn helsti veikleiki íslenskrar ferðaþjónustu er annars vegar mikið álag á ferðamannastaði yfir sumarið og hins vegar lítil dreifing erlendra ferðamanna utan höfuðborgarsvæðisins og Suðvesturlands utan sumartímans.
Það er af þessum sökum afar brýnt að fjölga áfangastöðum á landinu svo að álag af völdum ferðamanna dreifist betur en nú er. Hætt er við því að ella glatist upplögð sóknarfæri í þessari mikilvægu atvinnugrein. Hér er um mikla fjárhagslega hagsmuni fyrir íslenskt samfélag að ræða, enda er ferðaþjónusta ein af þremur meginstoðum atvinnulífs í landinu og hún er í þriðja sæti hvað varðar útflutningstekjur sem landið aflar. Ferðaþjónusta skapar 16,9% af útflutningstekjum þjóðarinnar (samkvæmt tölum frá 2008) og telur Hagstofan að árið 2008 hafi heildarkaup á ferðaþjónustu hér á landi numið tæplega 171 milljarði kr., eða sem svarar til 11,5% af vergri landsframleiðslu.
Með tillögunni er þess freistað að styrkja ferðaþjónustu á landsbyggðinni í fullu samræmi við markmið Sóknaráætlunar 20/20 um tímabundinn stuðning við vaxtargreinar, sérstakan stuðning við vetrarferðaþjónustu, stuðning við klasasamstarf fyrirtækja og umhverfismál ferðaþjónustu. Tillagan tekur einnig tillit til nýrrar ferðamálaáætlunar stjórnvalda þar sem áhersla er lögð á vetrarferðamennsku og fjölgun viðkomustaða fyrir allan þorra ferðafólks sem sækir landið heim.
Í þessari tillögu er sérstaklega horft til þess svæðis á landinu utan stærsta þéttbýliskjarnans sem getur á einna auðveldastan hátt tekið við auknum straumi ferðamanna á næstu árum, en þar er átt við svæðið frá Húnavatnssýslum og austur á firði með augljósum miðpunkti í Eyjafirði þar sem fullbúinn millilandaflugvöll er að finna, svo og sterka innri samfélagsgerð í langfjölmennasta þéttbýliskjarnanum utan höfuðborgarsvæðisins. Á þessu svæði, sem liggur beggja vegna Tröllaskaga og austur á firði, hefur á síðustu árum orðið gríðarleg uppbygging í fjölþættri ferðaþjónustu; jafnt íþrótta-, afþreyingar- og menningarstarfsemi, auk þess sem framboð á hótelum, gistihúsum og veitingahúsum á Norðurlandi hefur aukist hröðum skrefum á tiltölulega stuttum tíma. Þá er það einnig liður í þeirri tillögu sem hér er gerð grein fyrir að nýta betur innviði ferðaþjónustunnar utan höfuðborgarsvæðisins og þá miklu fjárfestingu í samgöngu- og menningarmannvirkjum sem sveitarfélög – og ekki síst ríkið – hafa ráðist í þar á síðustu árum. Þar nægir að nefna lengingu millilandaflugvallarins á Akureyri, nýleg (og áætluð) jarðgöng í Eyjafirði, uppbyggingu Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands á sama stað, viðamikla og stóraukna rannsóknarþjónustu Háskólans á Akureyri og byggingu menningarhússins Hofs.
Ferðaþjónusta á Norðurlandi, og raunar víðar á þeim svæðum sem liggja fjærst suðvesturhorninu, hefur að mörgu leyti liðið fyrir þá staðreynd að yfirgnæfandi meiri hluti ferðamanna sem kemur til landsins, rúmlega 92,8% (samkvæmt tölum Ferðamálastofu frá 2010), fer um Keflavíkurflugvöll og dvelur þar af leiðandi mestmegnis á sunnan- og vestanverðu landinu. Til samanburðar má geta þess að hlutdeild Akureyrarflugvallar í þessum hópi ferðamanna er innan við 0,5%. Því má segja að þeirri auðlind sem ferðafólk er í atvinnulífi landsmanna sé misjafnlega skipt milli landshluta. Það hefur bein áhrif á vaxtarmöguleika greinarinnar frá einu svæði til annars, eins og allar tölur og rannsóknir benda til. Gagnaöflun á sviði ferðamála, sem er m.a. í höndum Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands, virðist sýna að staðsetning flugvallar skiptir sköpum um ferðamynstur fólks: Þeir sem lenda í Keflavík dvelja að meðaltali 1,8 nótt á Norðurlandi, en þeir sem lenda á Akureyri dvelja að meðaltali 7,8 nætur á Norðurlandi. Tölurnar tala klárlega sínu máli.
Hér ber, frú forseti, reyndar allt að sama brunni. Rannsóknir Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála benda líka eindregið til þess að erlendir ferðamenn fljúgi varla beint til Akureyrar nema þeir hafi áður komið til Íslands: 60% erlendra ferðamanna sem fljúga beint að utan til Akureyrar hafa áður komið til landsins, en 18% erlendra ferðamanna sem koma til Keflavíkur eru endurkomufarþegar. Þá sýna nýjar rannsóknir enn fremur að einungis 6% útlendinga sem lenda í Keflavík dvelja mestan sinn tíma á Norðurlandi, en 76% þeirra halda sig aðallega á Suðurlandi. Dæmið snýst algerlega við hjá þeim erlendu ferðamönnum sem fljúga beint til Akureyrar, 20% þeirra ferðast um sunnanvert landið, en 92% þeirra verja mestum ferðatíma sínum á Norðurlandi.
Í þessu efni, frú forseti, er einnig rétt að hafa hagtölur í huga. Á árunum 2004–2008, sem er langmesta hagvaxtarskeið í sögu ferðaþjónustu á Íslandi, var hagvöxtur mjög misjafn milli landshluta á Íslandi. Á þessu árabili nam hann 41% á höfuðborgarsvæðinu, en var mun minni úti á landi og raunar neikvæður (-6%) í tveimur landshlutum; á Norðurlandi vestra og á Norðurlandi eystra. Gera má ráð fyrir að misjöfn skilyrði til vaxtar ferðaþjónustu hafi haft sín áhrif, en stjórnvaldsaðgerðir á hverjum tíma hafa þar auðvitað mikið að segja.
Frú forseti. Mig langar þessu næst að grípa niður í miðkafla greinargerðar með þeirri tillögu sem talað er fyrir þar sem talað er um misjafnt ferðamynstur á landinu.
Ferðaþjónusta á Íslandi er í mótun. Greinin þekkir enn ekki öll sóknarfæri sín. Ljóst er þó að áhersla á vetrarferðamennsku skiptir hana sköpum. Á sama hátt og betri dreifing ferðamanna um landið er greininni lífsnauðsynleg er dreifing þjónustunnar yfir allt árið einn þeirra meginþátta sem tryggir hana í sessi sem fullburða og arðbæra atvinnugrein. Áhersla á vetrarferðamennsku á Íslandi hefur verið ofarlega á baugi í íslenskri ferðaþjónustu um langt skeið og má í reynd rekja hana aftur til þess að forráðamenn stærsta flugfélags Íslands, Icelandair, tóku upp nýtt leiðakerfi í kringum 1990. Áhrifin eru augljós á suðvestanverðu landinu. Magnús Oddsson, fyrrverandi ferðamálastjóri, hefur bent á það í skrifum sínum að á árinu 1990 komu yfir 60% erlendra gesta yfir sumartímann og innan við 40% aðra mánuði ársins — hér er átt við flugtölur um Keflavíkurflugvöll. Eftir mikla vinnu hafi það markmið loksins náðst um 1997 að hingað til lands hafi fleiri erlendir ferðamenn komið utan hefðbundins háannatíma í greininni en yfir sumarmánuðina. Magnús bendir enn fremur á að tíu árum síðar, árið 2007, hafi 46% gestanna komið yfir sumarmánuðina, en 54% utan þeirra. Til samanburðar megi nefna Finnland sem hafi unnið gífurlega mikið og lengi að jöfnun ferðaálags. Þar sé nú svo komið að um 40% gestanna komi yfir sumarmánuðina en 60% utan þeirra.
Frú forseti. Það væri of langt mál að dvelja einvörðungu við þann texta sem felst í greinargerð með þessari tillögu en þar er með margvíslegum fleiri rökum komið að þessu mikilvæga hagvaxtar- og atvinnumáli sem hér er til umfjöllunar. Öll fræði og allar tölur hníga í þá átt að sóknarfærin í ferðaþjónustu hér á landi verða ekki nýtt til fulls nema við dreifum ferðamönnum betur yfir landið og betur yfir árið. Þar hefur Ísland upp á gríðarlega mikið að bjóða og nefni ég sérstaklega svæðið frá Tröllaskaga í austri að Vatnajökulsþjóðgarði í suðaustri. Á því svæði er að finna margar helstu náttúruperlur landsins. Til þessa höfum við kosið að vannýta þær þegar kemur að streymi erlends ferðafólks til landsins en ofnýta á sama tíma önnur svæði. Þetta er pólitískt val sem hefur verið við lýði í samgöngumálum á Íslandi um áratugaskeið.
Í máli mínu ætla ég ekki að hallmæla kostum ferðaþjónustu á suðvestanverðu landinu, á Vesturlandi og á Suðurlandi, en eina leiðin til þess að auka hagvöxt í þessari grein er að aukinn fjöldi erlendra ferðamanna komi á fleiri ferðamannastaði en þá sem mest eru nýttir til þessa og verði því flogið á nýja áfangastaði. Ég nefni ekki einvörðungu Akureyrarflugvöll í þessari þingsályktunartillögu heldur Egilsstaðaflugvöll sem er auk Akureyrarflugvallar varaflugvöllur fyrir Keflavíkurflugvöll og reyndar Reykjavíkurflugvöll líka ef út í það er farið. Ég nefni líka í þessari þingsályktunartillögu og þeir samþingmenn mínir sem eru með mér á henni að ef vel tekst til við framkvæmd hennar eigi að nota hana til að byggja upp sams konar ferðaþjónustu og markaðssókn í öðrum landshlutum og er Ísafjörður þar nefndur sérstaklega. Við verðum að horfa til alls landsins í þessum efnum. Við verðum að nýta betur þau samgöngumannvirki sem ríkið hefur með miklum tilkostnaði ráðist í á undanförnum árum. Við vannýtum þessi mannvirki í óvenjumiklum mæli og til að tryggja atvinnugreinina í sessi þurfum við að sækja fram á öllum sviðum, ekki bara sumum. Við verðum að horfa til alls ársins og alls landsins.
Þessi þingsályktunartillaga er lögð fram til að styrkja atvinnugreinina í sessi (Gripið fram í: Rétt.) og tryggja að ferðamenn sem sækja landið heim fari sem best um landið.