hafnir.
Virðulegi forseti. Þegar gerðar voru breytingar á hafnalögum á fyrri hluta fyrsta áratugar þessarar aldar, þ.e. á árunum 2003–2004, var í rauninni með ólíkindum að þær skyldu ganga fram. Þó að ég hafi blákalt gagnrýnt þá ráðherra sem véluðu þar um og voru allir í sama þingflokki og ég lá klaufaskapurinn hjá þeim í því að láta breytingarnar ganga eftir, en merkilegra var að Hafnasamband Íslands studdi þá tillögu, þ.e. að breyta hafnalögunum út frá þeim þætti að allar hafnir landsins væru í samkeppni.
Hafnir landsins eru ekki í neinni samkeppni. Það má segja að tvær hafnir hafi um skeið verið í nokkurs konar samkeppni en ákveðin breidd er þó í starfsemi og umfangi beggja, þ.e. Reykjavíkurhöfn og Hafnarfjarðarhöfn. Þær hafa verið í nokkurri samkeppni varðandi útflutningsþáttinn, þ.e. fraktflutninga. Aðrar hafnir landsins eru einfaldlega lykill hvers staðar, hverrar byggðar, til að sjá sér og sínum farborða, þ.e. að aðstaða sé til að taka á móti fiski og skipa út afurðum þegar flutningaskip sækja byggðirnar heim.
Hafnasambandið gerði á sínum tíma þau hrikalegu mistök að láta þetta ganga eftir með samþykki sínu og trúði þar íhaldsráðherrunum fyrir málinu. Það var mikil handvömm að það mál fór í þann farveg vegna þess að í hafnalögunum var gert ráð fyrir styrkveitingu, ákveðnu hlutfalli, við uppbyggingu hafna landsins sem varðaði bryggjukant og nokkur atriði tengd honum, ekki hafnargerðina í heild en á ákveðnum þáttum sem skipta þó miklu máli. Á þeim tíma sem þessi breyting var gerð hafði bara ein höfn á landinu efni á því að falla frá þessum þáttum. Það voru Faxaflóahafnir. Allar aðrar hafnir sátu í súpunni. Og nú er svo komið, sjö árum seinna, að margar litlu hafnirnar í kringum landið eru að drabbast niður. Það eru ekki einu sinni peningar til að endurnýja bryggjupolla sem eru nauðsynlegir í hverri höfn svo hægt sé að binda skipin. Þetta á við um allar litlu hafnirnar í landinu og almennar hafnir á Austfjörðum, Norðurlandi öllu og Vestfjörðum og Vesturlandi. Sú höfn sem stóð næst því að geta ráðið við þetta var stórhöfn Vestmannaeyja sem flytur út um 10% af afurðum Íslendinga í fiski og gefur þar með um 10% tekjur af öllu sjávarfangi sem nemur um 60% af öllum tekjum landsins, þ.e. útgerðin öll yfir landið, ekki bara Vestmannaeyjar.
Þetta er nokkuð sem þarf að vinda bráðan bug að leysa. Það frumvarp sem við ræðum er flutt með þá ætlan að taka upp fyrri lög með nokkrum breytingum og viðurkenna það að hafnir landsins og sú afstaða er ekki í samkeppni. Þær eru lífsnauðsyn fyrir allar sjávarbyggðirnar. Menn geta ekki séð fyrir sér að í framtíðinni þurfi að renna bátum í byggðum landsins upp í fjöru til að landa. Það þarf bryggjur. Hafnirnar, bryggjurnar, eru eins konar innheimtumaður ríkissjóðs á miklum verðmætum þegar sjávarfangi er landað. Þess vegna var þeim mun furðulegra að menn skyldu láta blekkjast og fella hafnalögin úr gildi. Reynslan hefur líka sýnt okkur að þetta mál gengur ekki upp. Samkeppni er ekki til staðar og fjármagnið sem er umleikis í mörgum sjávarbyggðunum er svo lítið að þær hafa ekki efni á að halda bryggjunum við, halda lífæðinni við. Hvað eru fiskimið án hafna? Og hvað eru Íslendingar án fiskimiða? Það er alveg ljóst að það væri ekki spennandi staða ef slík vandkvæði væru uppi í dag á Íslandi að menn gætu ekki nýtt aflann og auðinn sem gefur þjóðinni meira en helming af öllum tekjum ríkissjóðs sem skipta máli. Þetta frumvarp gengur því fram, en auðvitað í ljósi þess líka að ekkert hefur gerst í innanríkisráðuneytinu, hvorki í tíð fyrri samgönguráðherra né þess sem nú situr, til að ljúka hinni svokölluðu endurskoðun sem menn voru þó orðnir sammála um að þyrfti að verða því að málið gengi ekki upp. Hver vika, hver mánuður, hvert ár kostar mikið í þessum efnum. Það þarf að taka af skarið svo að við látum ekki hafnirnar sem eru á ábyrgð sveitarfélaganna drabbast niður til ónýtis. Þar liggja ekki bara tekjumöguleikar ríkissjóðs, þar liggja frekar tekjur sveitarfélaganna sem á hallar að svo mörgu leyti um þessar mundir. Þar er meðal annars um að ræða afleiðingar af bankahruninu sem varð hjá Íslendingum. Það liggur meira við hjá Íslendingum en öðrum vegna þess að Íslendingar eru eina þjóðin í Evrópu sem lifir í rauninni á fiskveiðum. Tekjulega séð er hlutfallið svo hátt að það skiptir gríðarlega miklu máli að aðbúnaður og aðstæður í þessum efnum séu í góðu lagi. Það er sums staðar í höfnum heimsins mikill íburður og mikill uppsláttur en svo er ekki í höfnum á Íslandi. Sem betur fer hefur verið unnið skynsamlega á þeim nótum að vaða ekki fram úr því sem þörf er fyrir þó að vissulega geti aðstæður breyst á stuttum tíma.
Ég nefni sem dæmi Sandgerðishöfn sem var byggð upp á árunum í kringum 1990 og var þá driftarmikil höfn með mikinn fisk og stóran flota. Þar litu menn líka svo á að þeir væru að byggja upp fyrir landið í heild, ekki bara fyrir Sandgerði heldur þjóna aðstæðum þar sem bátar víða að fiskuðu á miðunum suður og vestur af Reykjanesi og lönduðu aflanum í Sandgerði. Svo verður það slys, sem sem betur fer eru fá dæmi um en þó ein tvö, þrjú, að kvótinn er seldur frá byggðinni. Versta dæmið er Sandgerðishöfn þar sem fiskvinnslufyrirtæki á Akranesi keypti kvótann og bátana, flutti atvinnutækifærin og tekjur bæjarins til Akraness. Skömmu síðar, líklega tveimur árum síðar, kaupir HB Grandi fyrirtækið á Akranesi og flytur starfsemina til Reykjavíkur þannig að Akranes situr líka að mörgu leyti í sárum vegna þessarar veltu sem er einn ljótasti bletturinn á því kvótakerfi sem gildir í dag. Á tímabili ætlaði HB Grandi að flytja aftur starfsemina til Akraness til að skapa þar vinnu og líklega vegna þess að þeir hafa fundið til einhverrar ábyrgðar, en úr því varð ekki. Ástæðan var alveg með ólíkindum veik. Hún var sú að HB Grandi var búinn að fá mikið land úti á Granda, á hafnarmannvirkjasvæði, sem menn reiknuðu með að yrði byggt upp í sambandi við vinnslu og annað. Nei, þá ætluðu þeir hjá HB Granda að selja allt svæðið — þetta var á manndómsárunum 2007–2009, þeim sorglegu árum Íslandssögunnar — þeir ætluðu að selja lóðirnar sem þeir höfðu fengið keyptar undir íbúðarhúsnæði. Þegar það gekk ekki upp á þessum tíma féllu þeir frá því að byggja aftur upp á Akranesi.
Þetta er hluti af því dæmi sem við horfum á og er ekki til fyrirmyndar, eins og ég sagði. Það er í rauninni okkur til skammar að láta þetta ganga eftir. Ég er ekki að saka neinn sérstakan pólitískan flokk um það, allir eiga hlut að máli og kannski einna mest á þessum tíma minn flokkur. Þá vonar maður að aðrir kunni að gera betur og sýna þrek í að leysa mál. Það eina sem á að skipta okkur máli í stjórnmálum er að skila árangri, þannig árangri að menn sitji við sama borð, njóti sömu aðstæðna. Í öllu okkar kerfi, hvort sem það er í heilbrigðisþjónustu, menntakerfi eða öðrum þáttum, hljótum við fyrst og fremst að miða við að jafnræði sé þótt við vitum hins vegar að það er aldrei hægt að gera svo öllum líki, einfaldlega vegna þess að áhugasvið og áherslur eru mismunandi.
Það væri vel ef hæstv. innanríkisráðherra mundi fyrir sitt leyti flýta þessari vinnu. Í rauninni þegar þetta frumvarp er grannt skoðað er allt sem þarf að vera þar, þ.e. í gömlu lögunum. Einu hindranirnar eru breytingar með tilliti til ákveðinna samninga við Evrópska efnahagssvæðið fyrir Reykjavíkurhöfn og í Hvalfirði. Það eru hafnirnar tvær, hjá kísilverksmiðjunni í Hvalfirði og í Reykjavík, sem mundu ekki njóta styrkja vegna þess að tekjurnar eru það miklar af þessum tveimur höfnum. Hafnarfjarðarhöfn sem stóð oft sterk er dottin niður í þessu dæmi og situr nú uppi með bagga sem eru þungir. Það er þó ekki um þetta atriði að sakast í þeim efnum sem ég nefndi hér með réttinn heldur almenna stöðu sem menn hljóta að horfa til hverju sinni.
Ég ætla ekki að orðlengja málið frekar. Nú fer það til hv. umhverfis- og samgöngunefndar og vonandi gengur það þannig fram að hafnir landsins, byggðir landsins, styrkist en veikist ekki. Hv. þm. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, sem er formaður umhverfis- og samgöngunefndar, lýsti því yfir áðan í ræðu sinni um hafnir að hún teldi mikilvægt að landið væri sem mest í byggð. Það segir auðvitað að ekki yrðu margar byggðir út undan, það yrði örugglega reynt að tengja þær saman á einhvern hátt. En lögin eins og þau eru í dag hamla gegn því að byggðirnar standi. Þess vegna skiptir svo miklu máli að taka upp fyrra fyrirkomulag af því að það reyndist vel og brást ekki í neinu. Þó var ekki um að ræða síðustu árin nema um 800 millj. kr. framlag í Hafnabótasjóð sem átti að þjóna öllum höfnum landsins, smáum sem stórum, þannig að þetta eru ekki stórir peningar. Þetta eru tæplega þær tekjur sem ríkissjóður má ætla að komi inn á einum mánuði frá hinni fjölþættu starfsemi sem kemur til með að verða í Helguvíkurhöfn. Það er eins og gamall og reyndur kjötiðnaðarmaður í Eyjum sagði oft, virðulegi forseti, þegar hann sá eitthvað skynsamlegt og gaf aura von, með mikilli og djúpri tilfinningu: Þetta er bisness.
Þetta er ekkert annað en viðskipti. Þetta er spurning um að nýta möguleikana, gefa öllum færi og skilja ekki neina byggð eftir út undan, nema þar sé hreinlega komið í óefni í öllum þáttum og það getum við aldrei sagt fyrir fram.