140. löggjafarþing — 33. fundur,  7. des. 2011.

fjárlög 2012.

1. mál
[18:02]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil sömuleiðis fagna því að þessi tillaga líti hér dagsins ljós. Mikil óvissa hefur verið varðandi flug til Sauðárkróks vegna þess að til stóð að fella niður stuðning við flugið. Sama óvissa grúfði yfir þessu máli í fyrra. Þá tókst að leysa það með góðum vilja en nú dugðu ekki minna en 10 millj. kr.