140. löggjafarþing — 53. fundur,  2. feb. 2012.

öryggismál sjómanna.

[10:56]
Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg):

Hæstv. forseti. Mér finnst fullkomlega eðlilegt að vakin sé athygli á öryggismálum sjómanna, nú í kjölfar mjög alvarlegs slyss á sjó. Að vissu leyti hefði mér þótt heppilegra að fá þessa spurningu, sem er mjög efnisleg, í undirbúnum fyrirspurnum en mér finnst eðlilegt engu að síður að vakin sé athygli á þessu og ég mun fara yfir þessi mál og greina þingmanninum frá niðurstöðu minni að þeirri yfirferð lokinni.