140. löggjafarþing — 106. fundur, 24. maí 2012.
samþykkt rammasamnings milli ríkisstjórnar Íslands og framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
373. mál
Frú forseti. Málið var afgreitt í samræmi við dagskrá fundarins. Fundurinn var á reglulegum fundartíma utanríkismálanefndar klukkan hálfníu á fimmtudagsmorgni með auglýstri dagskrá. Formaður getur ekki stjórnað því hvenær einstakir nefndarmenn mæta til fundar.